top of page

Jarðskorpuflekar
Jarðskorpan er mynduð af svonefndum jarðskorpuflekum sem hreyfast hver gagnvarð öðrum.Mörk milli jarðskorpufleka kallast Flekamót og eru þrenns konar, fráreks-, samreks- og hjáreksbelti.Fráreksbelti nefnist það þegar fleka rekur í sundur. Þá flæðir bergkvika upp úr iðrum jarðar, storknar og myndar nýja jarðskorpu.
Vegna jarðskorpuhreyfinga verða jarðskjálftar um alla jörðina á hverjum degi þó að við tkum ekkert eftir þeim. Næstum allir þessir skjálftar verða á flekamótum. Við jarðskjálfta losnar á einu augnabliki spenna sem kann að hafa safnast upp í hundruð ára í jarðskorpunni. Langflestir sjálftar eru litlir og valda litlu sem engu tjóni. Stórum skjálftum fylgja margir smærri sjálftar, svokallaðir eftirskjálftar.
bottom of page