top of page

Miðbaugur
Miðbaugur jarðar (e. equator) liggur um það bil um 11-14 lönd eða þjóðríki. Miðbaugur liggur í gegnum landsvæði ellefu sjálfstæðra ríkja en auk þess liggur hann á milli eyja í eyjaklösum ríkjanna Maldíveyja og Kiribati. Einnig liggur hann um litla óbyggða eyju í Kyrrahafi sem nefnist Baker-eyja og fannst árið 1818. Bandaríkjamenn tóku hana eignarnámi árið 1857 og hún tilheyrir þeim nú. Eyjan er kórallaeyja sem hefur fallið saman í miðjunni og myndað hringlaga sjávarlón. Á erlendum málum nefnist eyja af því tagi atoll en á íslensku hringrif.
Ingólfur Bjarki Stefánson.
bottom of page

