
Kortið okkar


![]() | ![]() |
|---|---|
![]() | ![]() |
![]() |


Mest allan tíman erum við búin að vera að vinna í að búa til Evrópukort. Það getur tekið langan tíma að gera kort því að það er vandasamt og alltaf hægt að finna eithvað til að bæta við. Við byrjuðum á því að fá lánanða glæru til að setja í myndvarpa og vörpuðum henni upp á vegg og teiknuðum eftir línunum. þegar því var lokið og búið að tússa í línurnar merktum við inn öll löndin. Einnig merktum við svo inn höfuðborgirnar í öllum löndum og eru þær merktar með rauðum punkti. Við teiknuðum líka bláar öldur þar sem er úthöfin eru eða vatn og merktum líka hvað þau heita. Þegar það var komið langaði okkur að gera meira og ákváðum að merkja inn nokkra fræga einstaklinga frá hverju landi og frá hvaða bor þeir eru og merktum það með stjörnum. Gulllituðum fyrir þá sem eru enn á lífi og silfur fyrir þá sem eru látnir. Okkur fannst gaman að vinna þetta verkefni og hefðum getað haldið endalaust áfram en þurftum nú að stoppa einhverstaðar.






