
Austurhópur
Í þessum hóp eru:
Alexander, Jóhanna, Matthildur, Símon og Sveindís.

Markmiðin okkar

Við unnum líka mikið í vinnubókinni um kortalestur, áttirnar, hverfið mitt, veðrið, umferðarmerkin og hugtakakort.


Höfuðáttirnar

Hnitakerfi

Kort af þjóðvegi 1
Kaupstaðir á Íslandi

Kort af Íslandi með jarðorkuupplýsingum

Að nota kort
Ólöf fór með pabba sínum í rútu frá Egilsstöðum til Breiðdalsvíkur. Pabbi sagði henni frá landinu. Hann var með landakort og sá þar hvað fjöllin og bæirnir heita. Hann sagði líka að allir vegir á Íslandi hefðu nafn og númer, þau fóru um hringveginn.Hann fer í hring um landið og er númer 1. Þau beygðu út af honum áleiðis til Breiðdalsvíkur. Vegurinn sem fer um þorpið er númer 97. Þau fóru úr rútunni og gengu heim til ömmu. Hún býr við götu sem heitir Snæberg Ása var líka í rútunni. Hún á heima á Breiðdalsvíkur. Ása bauð Ólöfu að koma í heimsókn til sín. Hún sagði: ég á heima við Sólbakka. Húsið mitt er í reit C2 á kortinu í símaskránni.
Heimildir: Komdu og skoðaðu landakort
Sveindís Mary
Loftmynd

Að villast
Það er vont að vera villtur. Sá sem er villtur veit ekki hvar hann er.
Hann veit ekki í hvaða átt á að halda og veit ekki hvað er langt sem hann vill fara.
Hann ratar ekki.
Gott er ef annað fólk er nálægt.
Þá er hægt að biðja um leiðsögn.
Flestir þurfa einhvern tíma að spyrja til vegar og líka að vísa öðrum leið.
Til að rata þarf að taka vel eftir umhverfinu sínu.
Sá sem þekkir umhverfi sitt getur vísað öðrum til vegar.
Þá eru oft notuð orðin; til hægri og til vinstri.
Allir þurfa að þekkja þessi orð og kunna að nota þau.
Heimildir: Komdu og skoðaðu landakort.
Alexander Már
Að rata
Sem betur fer villumst við sjaldan. Við vitum hvar við erum,hvert við viljum fara og hvað er langt þangað.Leiðir sem við förum oft, eins og til dæmis leiðina í skólann, getum við séð fyrir okkur í huganum eins og mynd. Við getur jafnvel teiknað á blað ef við þurfum að útskýra hana fyrir einhverjum. Þá búum við til lítið landakort.
Ég fer út heima, niður götu og geng til vinstri.
Hinum megin við götuna er bílastæði.
Ég fer yfir götuna, að kirkjunni og beygi til vinstri.
Á næstu gatnamótum beygi ég til hægri.
Við gangbrautina beygi ég til vinstri og fer til Núma frænda.
Jóhanna Margrét Haraldsdóttir
Heimildir:Komdu og skoðaðu landakort
Áttirnar
Sólin kemur upp fyrir sjóndeildarhringinn á morgnanna
nálægt austri. Hún hækkar á himni og færist til suðurs.
Á Íslandi er sól hæst á lofti um klukkan hálf tvö. Þá er hún
í hásuðri. Síðan heldur sólin til vesturs og sest einhvern
tíma síðdegis. Um miðja nótt er sólin í norðri en þá sést
hún venjulega ekki nema nyrst á landinu í kring um 21.
júní. Þá skín þar miðnætursól.
Andri vill læra að þekkja áttirnar. Hann fer út á sólskinsdegi fljótlega eftir hádegi. Hann snýr baki í sólina, réttir handleggina út til hliðanna og horfir á skuggann sinn. Hann líkist áttastjörnu. Skugginn af Andra vísar í norður, vinstri höndin bendir nokkurn veginn í vestur, hægri höndin nokkurn veginn í austur og hlý sólin skín á hnakkann á Andra úr suðri.
Heimildir:
Komdu og skoðaðu landakort.
Mattý