
Grikkland
I'm a paragraph. Click here to add your own text and edit me. It's easy.Grikkland er land í Suðaustur-Evrópu á suðurenda Balkanskaga. Landið liggur að Jónahafi í vestri og Eyjahafi í austri. Landið skiptist í níu landfræðileg héruð. Um 80% landsins er fjalllendi og hæsti tindur þess er Ólympsfjall sem nær 2.917 metra hæð. Grikkland á lengstu strandlengju allra landa við Miðjarðarhafið. Íbúar Grikklands eru um ellefu milljónir. Aþena er höfuðborg Grikklands og búa um 4 milljónir manna í henni og hafnar borg Píreus. Í Aþenu til forna bjuggu um 200.000 manns. Borgin heitir eftir Aþenu frá grískri goðafræði þar sem Aþena er gyðja viskunar og hernaðarkænsku. Hún var dóttir Seifs og Metisar og var ein af Ólympsguðunum tólf. Grikkland er heimaland ólympiuleikanna. Fyrstu nútíma ólympíuleikarnir voru haldnir í Grikklandi 5. Apríl árið 1896 og sumarólympíleikarnir voru haldnir í Aþenu árið 2004. Saga Grikklands er löng og merkileg og landið er gjarnan álitið vera vagga vestrænnar siðmenningar. Landið rekur uppruna sinn til Mýkenumenningarinnar sem hófst á bronsöld um 1600 f.Kr. Sparta er borg á suðurodda Grikklands. Í fornöld var hún höfuðborg borgríkisins Lakedaímón sem almennt er kallað Sparta eftir borginni. Á klassíska tímanum var Sparta voldugast allra grísku borgríkjanna og tilraunir Aþeninga til að velta Spörtu úr þeim sessi leiddu til Pelópsskagastríðanna 431 f.Kr. til 404 f.Kr. og ósigri Aþenu. Nútímaborgin Sparta stendur nokkrum kílómetrum frá staðnum þar sem borgin stóð til forna.