top of page

 

 

                                                                                                     Malala Yousafzai

 

 

                                                                                     Baráttukona fyrir menntun stúlkna

 

Malala fæddist þann 12. júlí 1997 í Swat-dal í Pakistan. Fólkið í Swat-dal þurfti að þola átök og harðræði skæruliðahópa í mörg ár. Þessi átök hafa kostað ótal mannslíf. Pakistanski herinn hrakti skæruliðana burtu úr dalnum árið 2009. Skæruliðarnir hafa ítrekað reynt að ná dalnum aftur á sitt vald og hafa ráðist á fólk sem þeir telja vera andstæðingana sína.

Malala er í hópi þeirra sem skæruliðarnir telja andstæðingana sína. Malala byrjaði að berjast opinberlega fyrir rétti sínum og annara stúlkna til að læra þegar hún var 11 ára gömul. Skæruliðarnir höfðu hins vegar bannað stúlknaskóla og vildu ekki að konur fengju að menta sig. Þeim þótti því barátta Malölu vera ógnun við sig.

Þann 9. Október 2012, þegar Malala var á leiðinni heim úr skólanum í skólabílnum, réðust tveir vopnaðir menn inn í bílinn og skutu hana í höfuðið. Malala þurfti að gangast  undir marga uppskurði, bæði í Pakistan og á Bretlandi. Hún náði sér að mestu en lamaðist að hluta í andliti.

Malala fluti til Bretlands ásamt fjölskyldu sinni því þau voru ekki lengur örugg í Swat-dalnum. Hún stofnaði sjóð til að styðja stúlkur til náms og ætlar að halda baráttu sinni áfram. Malala hefur fengið fjölda verðlauna fyrir baráttu sína og fékk  friðarverðlauna Nóbels árið 2013.

 

Heimildir. Bókin sem ég var að nota heitir: Ég, þú og við öll.

Höfundar eru Kolbrún Anna Björnsdóttir og Fatima Hossani                                                               Auður Anna Eiríksdóttir.

bottom of page