top of page

Malala Yousafazai

Malala Yousafasi fæddist þann 12. júlí árið 1997 í Swat-dal í Pakistan. Fólkið í Swat-dal þurfti að þola átök og átök og harðræði skæruliðahópa í fjölda ára. Þessi átök hafa kostað mörg mannslíf. Pakistanski herinn hrakti skæruliðana úr dalnum árið 2009 en skæruliðarnir hafa aftur reynt að ná dalnum á sitt vald og hafa ráðist á fólk sem þeir telja andstæðinga sína.

 

 

Malala er ein af því fólki sem skæruliðarnir líta á sem andstæðing sinn. Malala byrjaði að berjast opinberlega fyrir rétti sínum og annara stúlkna til að ganga í skóla þegar hún var ellefu ára gömul. Skæruliðarnir höfðu hins vegar bannað stúlknaskóla og vildu ekki að konur menntuðu sig. Þeim þóttu því barátta Malölu vera ógnun við sig.

 

Þann 9. október 2012, þegar Malala var að fara heim úr skólanum í skólabílnum, réðust tveir vopnaðir menn inn í bílinn og skutu hana í höfuðið. Malala þurfti að fara í margar skurðaðgerðir ,bæði í Pakistan og á Bretlandi. Hún náði sér að mestu en lamaðist að hluta í andliti.

 

Malala flutti ásamt fjölskyldu sinni til Bretlands af því að þau voru ekki lengur örugg í Swat-dalnum. Hún stofnaði sjóð til að styðja stúlkur til náms og ætlar að halda baráttu sinni áfram. Malala hefur fengið fjölda verðlauna fyrir baráttu sína og var tilnefnd til friðarerðlauna Nóbels árið 2013.

Embla Björk Jónsdóttir

bottom of page