top of page

 

 

 

Líffærakerfi líkamans

Frumur af ýmsum gerðum, vefir og líffæri verða að starfa saman til þess að líkaminn geti skilað sínu hlutverki. Nokkur líffæri sem starfa saman að tilteknu verkefni, kallast líffærakerfi. Hér er yfirlit um helstu verkefni líffærakerfisins.

 

Öndunarfærin: þegar andrúmsloftið berst niður í lungun fer súrefni úr því og yfir í blóðið sem flytur það til frumnanna í líkamanum. Súrefnið er nauðsynlegt hráefni við brunann í frumum.

 

Meltingarfærin: fæðunni er sundrað í maga og þörmum og næringarefnin tekin upp í blóðið og flutt til frumnanna. Við þetta losnar meðal annars glúkósi sem er nauðsynlegur við brunann.

 

Blóðrásakerfið: blóðið flytur súrefni og næringu til frumnanna og úrgangsefni frá þeim. Hjartað dælir blóðinu eftir æðum til frumnanna í líkamanum.

 

Ónæmiskerfið: ónæmiskerfið verndar líkamann, t.d. gegn bakteríum og veirum sem geta valdið sjúkdómum.

 

Úrgangslosunarkerfið: nýrun og lifrin eru hreinsunarstöðvar líkamanns. Þessi líffæri taka úrgangs- og eiturefni úr blóðinu og losa þau út með þvagi eða saur

 

Stoð- og hreyfikerfið: beinagrindin ber uppi líkamann og verndar innri líffæri. Vöðvar hreyfa mismunandi hluta líkamanns og flytja fæðuna eftir meltingarveginum.

 

Húðin: húðin er verndarhjúpur sem umlykur líkamann. Hún heldur bakteríum og fleiri óæskilegum hlutum utan hanns. Hún kemur líka í veg fyrir að líkaminn þorni upp og á þátt í að stjórna líkamshitanum.

 

Taugakerfið og skynfærin: heilinn gefur öðrum líffærum fyrirmæli með boðum sem berast eftir taugum. Skilningarvit okkar –sjón, heyrn, jafnvægi, tilfinning, bragð, og lykt- eru ólíkar gerðir skynjunnar. Líffærin sem greina þessa skynjun eru köllluð skynfæriog þau flytja heilanum upplýsingar um það sem gerist í kringum okkur.

 

Innkirtlakerfið: innkirtlakerfið er gert úr ýmsum kirtlum sem framleiða hormón. Hormónin flytjast með blóðinu og bera mismunandid boð til frumna og líffæra

 

Æxlunarfærin: æxlunarfærin eru nauðsynleg til þess að við getum eignast afkvæmi. Sáðfrumur myndast í eistum karla og eggfrumur í eggjastokkum kvenna.

Líffærin

bottom of page